Nýr leikvöllur á Borg

Stefna Hugbúnaðarhús • September 22, 2023

Meira fyrir börnin

Fyrr í sumar var framkvæmdum á nýjum leikvelli við Hraunbraut á Borg í Grímsnesi lokið.

Settur var upp fjöldi nýrra leiktækja, sem dæmi má nefna rólur, klifurgrind og rennibraut en það er nýja aparólan sem skarar fram úr meðal krakkanna.

Framkvæmd leikvallarins var samstarf Fossvéla, Grjótgás og Jóhanns Helga & Co. en það var Hermann Ólafsson, landslagsarkitekt hjá Landhönnun, sem hannaði hann og vill sveitarfélagið þakka fyrir vönduð vinnubrögð allra sem komu að verkinu.

Verkið er hluti af fjölda spennandi verkefna við opin svæði á Borg í Grímsnesi sem haldið verður áfram næstu ár. Leikvöllurinn er frábær viðbót við Borgarsvæðið og er hann opinn öllum.

Fyrr í sumar var framkvæmdum á nýjum leikvelli við Hraunbraut á Borg í Grímsnesi lokið.

By Ingimar Svanberg Jóhannesson March 12, 2019
Sólheimar er einstakt samfélag þar sem búa og starfa rúmlega 100 manns saman. Íbúar Sólheima leggja metnað sinn í að taka vel á móti gestum og eru allir velkomnir í heimsókn.
By Stefna Hugbúnaðarhús March 12, 2019
Mikil uppbygging