Mikil uppbygging á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi

Stefna Hugbúnaðarhús • March 12, 2019

Mikil uppbygging

Síðastliðin tvö ár hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps úthlutað lóðum til íbúðabygginga í þéttbýliskjarnanum á Borg, öllum þeim lóðum sem voru tilbúnar hefur verið úthlutað. Lóðirnar sem um ræðir eru ætlaðar undir 7 einbýlishús, 8 parhús og 3 raðhús.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er mikið að gerast og uppbygging hafin á flestum lóðum. Líkur eru á að íbúafjöldi í þéttbýliskjarnanum tvöfaldist því á næstu mánuðum þegar íbúðirnar fyllast af nýjum íbúum. Mikill hraði einkennir uppbygginguna sem nú á sér stað eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Borg í ágúst 2022

By Stefna Hugbúnaðarhús • September 22, 2023
Meira fyrir börnin
By Ingimar Svanberg Jóhannesson • March 12, 2019
Sólheimar er einstakt samfélag þar sem búa og starfa rúmlega 100 manns saman. Íbúar Sólheima leggja metnað sinn í að taka vel á móti gestum og eru allir velkomnir í heimsókn.